Sverrir Stormsker / Þjófabálkur  



Þjófabálkur
(Lag og texti: Sverrir Stormsker)

Amma hún var bæði góð og gegn,
grandvör, trú og alveg heil í gegn.
Hún gaf mér óspör ótal hagnýt ráð.
Hér eru nokkur sem ekki visna í bráð:

Farðu aldrei út í viðskipti
með Íslendingum, það er glapræði.
Þeir fara einatt út af réttri braut
og eru flestir heimskari en naut.

Hlýddu ekki á þeirra þýðu raust
sem þusa um sín heilindi, illa gerðir.
Þeir sem tala manna mest um traust
eru menn sem eru ekki traustsins verðir.

Trúðu varlega orðum Íslendinga,
þeir allir telja sig til sérfræðinga
og gorta sig af innri ofurmætti,
en eru bara fagmenn í viðvaningshætti.

Þótt þjóðin sé hláturmild, happy og lyndisgóð
þá hef ég grun um að obbinn í laumi gráti.
Við erum heimsins hamingjusamasta þjóð
og heimsmet eigum í þunglyndislyfjaáti.

Hér á Fróni er fjöldi glópa,
- falskir smákóngar.
Íslendingar upp til hópa
eru fábjánar.

Þeir eru þjóðrembur fram í fingurgurgóma,
fella um sæmdarþjóðir sleggjudóma,
amatörar, aular, firrtir sóma,
öskra um sína snilld með hausa tóma.

Á stjórnmálamenn og álfa og tröll þeir trúa,
tigna þá sem allra mestu ljúga,
geta ei lært af reynslu, eru á eftir,
svo innilega naíve og þroskaheftir.

Þeir skemma allt og öllum hlutum klúðra,
en eru manna bestir í að slúðra,
er einkar lagið að okra, pretta og slugsa
en erfiðlega gengur þeim að hugsa.

Frá Noregi þeir forðum flýðu burtu,
Fífl og krimmar, gungur, drulluhælar,
viðvaningar, vitfirringar, durtar,
þeir voru, eru og verða alltaf þrælar.

Þetta sólarlausa skálkasker
er skýli fyrir þjófa og rumpulýð.
Þar flestir ljúga grimmt að sjálfum sér
en sannleikann um sig þeir kalla níð.

Þröngsýnir og þrælslundaðir,
þorlausir og óheiðarlegir,
svikulir, spilltir, sjálfumglaðir,
sjálfhverfir og gáfnatregir.

Þeir ljúga heil ósköp, öllu fögru lofa,
en efna fátt, já það er alveg víst.
Innræktaðir Íslendingar lofa
ekki góðu, þetta er genatískt.

Í öllum málum þeir vaða í villu og svíma.
Viðvaningar best á Fróni þrífast.
Í glópsku eyða öllum sínum tíma
í að þræla, hneykslast, slúðra og rífast.

Óupplýstir en fróðleiksfúsir mjög
um flest það sem að snýr að náunganum.
Búa flestir háum húsum í
en hugsunin er enn í torfkofanum.

Losna vildi hver einasta íslensk hetja
undan Dönum, - gjaldþrot upp við skárum.
Tókst með linnulausri snilld að setja
landið á hausinn á sextíu og fjórum árum.

     
tv@hjariveraldar.is     um vefinn     S: 695 7799